|
|
|
|
|
Fjórhjólaferðir í boði
|
|
|
|
|
|
|
|

Í boði eru ferðir við allra hæfi, allt frá klukkutíma ferðum til dagsferða. Einnig bjóðum við uppá lengri ferðir í nokkra daga um hálendi landsins.
Í klukkutímaferðum er farið um Haukadalsskóg uppá Haukadalsheiði, þar sem við blasa Jarlhetturnar með Langjökul í baksýn. Slóðirnar í skóginum veljum við með tilliti til getu og samsetningar hópsins hverju sinni. Ekið er yfir fallegar bergvatnsár um hávaxinn skóg og uppá heiði þar sem andstæðurnar taka við, sandurinn og auðnin.
Í dagsferðum er farið upp að Hagavatni, sem er jökullón austan undir Hagafelli í Langjökli. Þar er stórkostlegt að sjá jökulinn brotna ofan í lónið og afrennsli vatnsins, Farið, þar sem það brýst fram af miklum krafti, niður í gljúfur með fossum og flúðum, um 100 m niður á jafnsléttu.
Við höfum langa reynslu af skipulagningu ferða um hálendið, jafnt að sumri sem vetri. Reyndir leiðsögumenn, öll öryggistæki og búnaður sem til þarf, aðgangur að fallegum fjallaskálum, fyrsta flokks matur og allt sem til þarf. Láttu okkur um að skipuleggja fyrir þig ævintýraferð um hálendið, þar sem þú vilt bæði reyna og njóta.
|
|
|
|
|
| Gleði ehf | kt: 650509 1020 | Haukadalsskógur | Geysir | sími: 869 4474 | 4hjol@4hjol.is |  |
|